Sigur Ros - Með suð í eyrum við [2008] [EMI]
Nýjustu breiðskífu Sigur rósar, Með suð í eyrum við spilum endalaust, var beðið með mikilli eftirvæntingu í höfuðstöðvum Monitors. Eftir vel heppnaða heimildarmynd um tónleikaferð hljómsveitarinnar um Ísland í fyrra var ákaflega erfitt að spá fyrir um hvað kæmi næst. Fréttir bárust af samstarfi Sigur rósar og upptökustjórans Flood í fyrra. Hann hefur unnið með U2 og The Killers, sem eru langt frá því að
vera á sömu tónlistarlegu bylgjulengd og Sigur rós.
Fyrsta lagið á Með suð í eyrum… lýsir á óyggjandi hátt yfir að skífan er öðruvísi en fyrri verk Sigur rósar. Lagið heitir Gobbledigook og blandar á frábæran hátt folk-poppi saman við melódíu sem fáir töfra fram jafn vel og Sigur rós. Þar með hefur tónninn verið sleginn; Sigur rós hefur ekki verið jafn fersk í langan tíma. Gobbledigook og næsta lag, Inní mér syngur vitleysingur, eru hressandi vitnisburður um hversu framúrskarandi hljómsveit Sigur rós er. Jafn vel útfærð popptónlist er vandfundin.
Með Með suð í eyrum… er Sigur rós þó á engan hátt að yfirgefa uppruna sinn. Skífan geymir allt sem gerir Sigur rós að Sigur rós. Fallegar strengjaútsetningar, alls kyns hljómborð og önnur torkennileg hljóð sem krydda súpuna og gera hana bragðbetri. Skífan er að miklu leyti auðmeltari en fyrri verk Sigur rósar og að mörgu leyti skemmtilegri en () og Takk. Það liggur beinast við að bera hana saman við meistaraverkið Ágætis byrjun, enda hefur hún allt. Nokkuð hefðbundna popptónlist í Við spilum endalaust og ekta Sigur rósar-epík í Festival og All Alright. Þá er Ára bátur hreint stórkostlega fallegt lag þar sem sinfóníuhljómsveit og drengjakór njóta sín við hlið Sigur rósar.
Sigur rós er hljómsveit sem fer algjörlega sínar eigin leiðir og kemst upp með það. Með suð í eyrum… er nánast hnökralaus skífa sem á eftir að opna nýjar dyr fyrir hljómsveitina og auka hróður hennar um allan heim.
Mai bun decat Takk.
[8.3]
